124,6 fm. steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum byggt árið 1950.
Efri hæð hússins sem er 80,6 fm. að stærð skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og tvær samliggjandi stofur. Út af stofu er gengið út á nýlegan ca. 30 fm. sólpall.
Úr eldhúsi er gengið niður á neðri hæð sem er 44 fm. að stærð. Skiptist hún í forstofu, tvö herbergi og þvottahús. Útbúa mætti sér íbúð á neðri hæð.
Nýleg innrétting og tæki eru á baðherbergi. Nýlegir gluggar eru á efri hæð nema í svalahurð. Þá eru nýlegar lagnir að ofnum á efri hæð hússins. Að utan er húsið klætt með álklæðningu. Járn á þaki er nýlegt.
Steypt plata er á milli hæða og yfir íbúð á efri hæð.
Neðri hæð þarfnast standsetningar að innan.
Ágætt útsýni er úr stofu og af sólpalli.
Opið svæði er fyrir aftan húsið og er þar barnaleikvöllur.