87,4 fm. íbúð í parhúsi ásamt 36 fm. bílskúr.
Íbúðin er á tveimur hæðum.
Gengið er inn á efri hæð og skiptist hún í forstofu, hol, eldhús, stofu og eitt svefnherbergi. Flísar eru á forstofu en parket á öðrum gólfum.
Úr holi er gengið niður á neðri hæð og skiptist hún í hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og kyndiklefa. Flísar eru á baðherbergi og þvottahúsi en parket á holi og herbergjum.
Góðar innréttingar eru í íbúðinni.
Innangegnt er af neðri hæð í bílskúr. Bílskúr er með sjálfvirkri hurð.
Lóð er frágengin og út af eldhúsi er góður sólpallur.
Gluggar voru endurnýjaðir fyrir ca. 6 árum og gólfefni eru ca. 10 ára gömul. Þá hafa frarennslislagnir verið endurnýjaðar.
Að utan er neðri hæð hússins klætt með kanexelklæðningu og sú efri með stálklæðningu.