116,1 fm. íbúð á efri hæð í steinsteyptu tvíbýlishúsi ásamt 25,5 fm. bílskúr á neðri hæð.
Íbúðin er með sérinngangi og skiptist í forstofu, hol, eldhús, þvottahús/búr, stofu, baðherbergi og þrjú svefnherbergi.
Svalir eru út af stofu og hjónaherbergi.
Upprunalegar innréttingar eru í íbúðinni.
Ágætt útsýni er frá íbúðinni.
Bílskúr er með sjálfvirkri hurð.
Eignin þarfnast viðhalds.