Hótel með 7 herbergjum byggt árið 2017.
Nánar er um að ræða 353 fm. hús byggt úr timbri (bjálkahús).
Auk herbergja eru í hótelinu mótttaka, matsalur, eldhús og þvottahús.
Allur búnaður tengdur hótelrekstri fylgir.
Húsið stendur á 7 ha. lóð. Velyrði liggur fyrir frá skipulagsyfirvöldum um að leyfi fáist til að byggja 80 herbergja hótel á lóðinni.
Hótelið er í fullum rekstri og er bókunarstaða mjög góð.
Hótelið er staðsett ca. 10 km. sunnan við Stykkishólm örstutt frá vegamótum Skógastrandarvegar og Snæfellsnessvegar.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.