180,6 fm. steinsteypt iðnaðarhúsnæði byggt árið 1961. Í húsinu er nú áhaldahús Sveitarfélagsins Stykkishólms.
Húsið skiptist forstofu, kaffistofu, skrifstofuherbergi, baðherbergi geymsluherbergi og stóran sal.
Í sal er gryfja og inn af henni er geymslurými. Þá er geymsluloft yfir geymslu.
Stór nýleg innkeyrsluhurð er á salnum og gönguhurð er á bakhlið. Nýlegir gluggar eru í sal en komin er tími á að endurnýja þak.
Lóð framan við húsið og með gafli eru með bundnu slitlagi. Gott geymslusvæði er á baklóð.
Möguleiki er að á að skipta sal í tvo hluta þar sem gert er ráð fyrir tveimur innkeyrsludyrum en önnur hefur verið klædd af. Þá er einnig möguleiki á að stækka glugga þar sem gluggagöt eru síðari en gluggar.
Eignin er vel staðsett miðsvæðis í bænum og getur hentað undir ýmiskonar starfsemi.