17. júnítorg 3, 210 Garðabær
91.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
106 m2
91.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2006
Brunabótamat
58.700.000
Fasteignamat
88.050.000

 Íbúð á jarðhæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi. Húsið er byggt árið 2006. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara. Íbúðin er fyrir 50 ára og eldri.

Skráð stærð íbúðarinnar eru 98,9 fm og geymsla í kjallara er 7,9 fm.

Íbúðin skiptist í samliggjandi hol, stofu og eldhús, gestasnyrtingu, eitt rúmgott svefnherbegi, baðherbergi og þvottahús. Gengið er í þvottahús úr svefnherbergi og eldhúsi. Baðherbergi er inn af þvottahúsi.

Góðar innréttingar eru í íbúðinni. Á gólfum í holi, stofu og eldhúsi er parket sem nýlega hefur verið slípað og lakkað. Á þvottahúsi, baðherbergi og gestasnyrtingu eru flísar.

Út af stofu er sólskáli og sólpallur.

Góð geymsla er í kjallara og sérmerkt bílastæði í bílakjallara. Lyfta er í húsinu.

Lóð er frágengin. Steypt bílastæði eru framan við húsið og gróin lóð aftan við það. Á lóð má m.a. finna leiktæki fyrir börn.

Þjónusta vegna þrifa á sameign og umhirðu lóðar er aðkeypt. Sameign lítur vel út og er mjög snyrtileg.

Íbúðin lítur mjög vel út að innan og ber með sér að hafa verið vel umgengin. 

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 438-1199 og eins má senda fyrirspurnir á netfangið [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.