Tangagata 6, 340 Stykkishólmur
52.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
5 herb.
90 m2
52.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1940
Brunabótamat
39.550.000
Fasteignamat
28.650.000

90,8 fm. einbýlishús á tveimur hæðum byggt árið 1940. Neðri hæð hússins er steypt en sú efri er úr timbri.

Aðalinngangur hússins er á efri hæð sem skiptist forstofu, gestasnyrtingu, samliggjandi stofu og eldhús, sólstofu og eitt svefnherbergi. Dúkur er á öllum gólfum efri hæðar. Sólstofan er nýleg.  

Úr holi er gengið niður á neðri hæð og skiptist hún í gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Þess má geta að flísar eru á svefnherbergjum, baðherbergi og þvottahúsi en teppi á gangi. Útihurð er á neðri hæð.  

Góðar innréttingar eru í húsinu og hafa innréttingar í eldhúsi, gestasnyrtingu og baðherbergi verið endurnýjaðar. Hitalögn er í gólfum í þvottahúsi og baðherbergi.  Geta má þess að flísar í forstofu og gestasnyrtingu eru keyptar í Marakkó og flísar við eldavél eru handgerðar af listakonunni Borghildi Óskarsdóttur.  

Framan við húsið er steypt stétt og pallar eru út af sólstofu og við útidyr á neðri hæð.

Undir sólstofu er geymsla.

Húsið er staðsett í eldri hluta bæjarins og frá því er skemmtilegt útsýni Lóð hússins nær niður undir víkina sem sést á myndum. 

Skipt var um járn og pappa  á þaki hússins og drenlögn lögð fyrir ca. 20 árum.  Endurbæta þyrfti drenlögn á norðurhlið hússins. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.