Laufásvegur 1, 340 Stykkishólmur
89.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
8 herb.
196 m2
89.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
4
Inngangur
Sér
Byggingaár
1981
Brunabótamat
101.250.000
Fasteignamat
67.800.000

Fasteignasala Snæfellsness kynnir  fallegt og  skemmtilega staðsett 196,1  fm einbýlishús með aukaíbúð og  miklu og fallegu útsýni.
Húsið, sem var byggt árið 1981, stendur við enda botnlangagötu á fallegum stað með miklu útsýni yfir gamla bæinn, Maðkavík, kirkjuna og út á Breiðafjörð. Örstutt ganga er í gamla bæinn og alla þjónustu s.s. skóla, íþróttahús, sundlaug og verslanir.

Húsið er á þremur hæðum og skiptist í steypta jarðhæð (aukaíbúð) og hæð og ris úr timbri. Þrjú bílastæði og hleðslustöð tilheyra húsinu en auk þess eru tvö bílastæði á bæjarlandi í enda botnlangagötunnar.

Gengið er að húsinu eftir hellulögðum stíg í gegnum náttúrulegt garðsvæði. Framan við húsið er hellulögð stétt og geymsluskúr. Aðalhæðin skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús,  geymslu og samliggjandi stofu og eldhús. Úr stofu er gengið út á stóran og sólpall með heitum potti og skjólveggjum. Úr eldhúsi og sólpalli er gríðarlega fallegt útsýni.

Úr holi er stigi upp á efri hæð hússins en hún skiptist í hol með línskáp, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og stórt hjónaherbergi með rúmgóðum fataskáp og sér baðherbergi. Einstaklega fallegt útsýni er úr öllum herbergjunum.

Á jarðhæðinni er u.þ.b. 30 fm aukaíbúð sem hefur verið í fastri leigu eða nýtt í ferðaþjónustu. Íbúðin skiptist  í samliggjandi eldhús og stofu, eitt svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Ný gólfefni eru í íbúðinni og nýlegar veggklæðningar á baðherberrgi. Framan við íbúðina er hellulögð stétt og sjávarmöl. Þaðan er mjög fallegt útsýni.

Húsinu  var töluvert breytt árið 2014 og var efri hæðin endurgerð og  stórum kvistum, eldvarnarhurðum og neyðarstigum komið fyrir til þess að uppfylla skilyrði fyrir rekstrarleyfi gistiheimilis. Miðhæðin var mikið endurnýjuð  árið 2019-2020 og voru þá útveggir einangraðir, hæðin klædd með bárujárni eins og efsta hæðin, skipt um glugga í þvottahúsi, eldhúsi og stofu, sett tvöföld hurð út á sólpallinn, veggur milli stofu og eldhús fjarlægður og settur burðarbiti í loftið, gólf parketlögð, sett upp ný eldúsinnrétting og rúmgóðum heitum potti komið fyrir.   Árið 2023 voru tvö minni svefnherbergi á efri hæðinni sameinuð í rúmgott hjónaherbergi.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.