Litlu tungueyjar , 341 Stykkishólmur
45.000.000 Kr.
Lóð/ Jörð
3 herb.
45 m2
45.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1992
Brunabótamat
14.000.000
Fasteignamat
13.857.000

Til sölu er jörðin Litlu Tungueyjar á Breiðafirði.

Jörðin samastendur af þremur eyjum, Bjargey, Tóftarey og Ábæti ásamt tilheyrandi hólmum og skerjum. Flatarmál eyjanna er ca. 3 ha. á flóði og tún eru skráð 2,5 ha. í fasteignamati.  

Á Bjargey er gott fullklárað sumarhús, ca. 45 fm.  byggt árið 1992. Húsið er kynnt með kamínu og vatn er tekið af þaki. Ekki er rafmagn í eyjunni.  Í  húsinu er gasísskápur.

Eyjarnar tilheyrðu áður jörðinni Litlu Tungu en urðu sjálfstæð jörð sennilega á seinni hluta 19. aldar.  

Um hálftíma sigling er í eyjarnar frá Stykkishólmi og ca. 10 mínútna sigling frá Fellsströn. 

Gúmmíbátur af gerðinni AKA getur fylgt. Báturinn er 5,4 metrar á lengd og er með 90 ha. utanborðsmótor  og hnakk.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.