110 fm. verslunarhúsnæði á jarðhæð í steinsteyptu húsi byggðu árið 1971.
Húsnæðið skiptist í verslunarrými, starfsmannaaðstöðu og salerni.
Flísar og parket eru á gólfum.
Um er að ræða endarými í verslunarhúsi þar sem eru fleiri verslanir og fyrirtæki.
Húsnæðið er vel staðsett miðsvæðis í Ólafsvík.
Framkvæmdir standa yfir á bakhlið hússins sem fela í sér að settar hafa verið upp varmadælur, skipt um glugga og klæðning endurnýjuð. Kostnaður af þeim framkvæmdum sem standa yfir og hafa verið ákveðnar verða greiddar af seljanda.